Þegar meðlimir skrá sig í þjónustu geturðu spurt þá spurninga með könnun, t.d. um treyjustærð, ofnæmi eða leyfi fyrir myndbirtingu, og sent þeim tilkynningartölvupóst sjálfkrafa.
Dæmi: fyrir sumarbúðirnar spyrðu um bolastærð og ofnæmi barnsins og sendir tölvupóst með dagskrá fyrsta dagsins.
Farðu í Heim → Þjónustur, smelltu á þá þrá punkta (⋮) við þjónustuna og veldu Breyta. Þú getur líka gert þetta þegar þú stofnar nýja þjónustu.
Smelltu á Ítarlegar stillingar neðst.
Undir Könnun smellirðu á Sýsla.
Veldu könnun af listanum í Stjórna könnunum. Spurningarnar birtast hægra megin.
Til að búa til nýja smellirðu á Create new, gefur henni titil og lýsingu, bætir við spurningum og vistar.
Smelltu á Velja til að tengja könnunina við þjónustuna.
Meðlimir svara könnuninni þegar þeir skrá sig. Spurningar merktar með * verður að svara.
Undir Tilkynningar-tölvupóstur smellirðu á Sýsla.
Veldu tölvupóstsnið eða búðu til nýtt og veldu það.
Tölvupósturinn er sendur sjálfkrafa til allra sem skrá sig í þjónustuna.
Smelltu á Vista breytingar.
Á síðu þjónustunnar geturðu séð svör hvers meðlims (Skoða svör við könnun). Notaðu Flytja út sem Excel til að sækja öll svörin.
Stofna þjónustu
Breyta, afrita eða setja þjónustu í safn
Yfirlitssíða meðlims