Allir reikningar félagsins eru undir Fjármál → Reikningar. Þar finnurðu hvern reikning, sérð hvort hann hefur verið greiddur og grípur til aðgerða, t.d. endurgreiðslu, hættir við hann eða bætir við greiðslu.
Smelltu á peningatáknið í valmyndinni til vinstri til að opna Fjármál.
Veldu Reikningar.
Listinn sýnir fyrir hvern reikning: Síðast uppfært (og hvenær hann var stofnaður), Meðlim, Deild, Titil, Reikningsnr., Samtals, hve mikið hefur verið Greitt og Stöðu.
Notaðu síurnar efst til að finna reikninga fljótt:
Finndu reikningsnúmer: leita að ákveðnum reikningi.
Staða: Greitt, Greiðsludreifing, Beiðni um greiðslu, Mistókst eða Aflýst.
Tegund, Deild, Þjónusta, Bankareikningur og Greiðslumáti.
Tímabil: sjálfgefið er Síðustu 7 dagar, en þú getur valið annað tímabil eða eigin dagsetningar.
Fleiri síur fyrir fleiri möguleika.
[
Greitt: reikningurinn er að fullu greiddur.
Greiðsludreifing: reikningurinn er greiddur í afborgunum.
Beiðni um greiðslu: reikningurinn hefur verið sendur og bíður greiðslu.
Mistókst: kortagreiðsla fór ekki í gegn.
Aflýst: hætt hefur verið við reikninginn og meðlimurinn sér hann ekki lengur.
Opnaðu reikninginn og smelltu á þá þrá punkta (⋮) efst til hægri:
Skoða skráningu eða Sækja reikning.
Bæta við greiðslu: sjá Bæta handvirkri greiðslu við reikning.
Bæta við afslætti: sjá Veita afslátt af reikningi.
Bæta við endurgreiðslu: sjá Endurgreiða greiðslu.
Niðurfelling: sjá Fella niður ógreidda stöðu.
Hætta við reikning: sjá Hætta við ógreidda reikninga.
Til að grípa til aðgerða á marga reikninga í einu hakarðu við þá og notar Aðgerðir hægra megin.
Í valmynd Fjármála eru líka Færslur (allar greiðslur, endurgreiðslur og niðurfellingar), Skráningar, Reikningsyfirlit, Kortafærslur sem þurfa athygli og uppgjör inn á bankareikning félagsins.
Bæta handvirkri greiðslu við reikning
Endurgreiða greiðslu
Hætta við ógreidda reikninga