Yfirgefa flokk
Forráðamenn og leikmenn geta yfirgefið flokk í appinu, með eftirfarandi undantekningum:
Ef notandi er með virka áskrift, er ekki hægt að yfirgefa flokkinn í appinu.
Ef notandi er með ógreiddan reikning, er ekki hægt að yfirgefa flokkinn í appinu.
Í þessum tilfellum þarf að hafa samband við viðkomandi félag til að fá aðstoð.
Leiðbeiningar til að yfirgefa flokk
Opnaðu Abler appið og veldu Flokkar.
Smelltu á flokkinn sem þú vilt yfirgefa og veldu Upplýsingar.
Farðu efst í hægra hornið, smelltu á þrjá punktana (...) upp í hægra horninu og veldu Yfirgefa flokk.