Þessi grein veitir leiðbeiningar um hvernig á að bæta þjálfara við í Abler, velja réttan aldursflokk og úthluta viðeigandi þjálfarastöðu. Hún skýrir einnig mismunandi hlutverk þjálfara og hvernig á að stofna eða fjarlægja þjálfara í kerfinu.
Stofna þjálfara
Smelltu á Stofna þjálfara efst í hægra horninu.
Það nægir að skrá netfang og símanúmer starfsmanns.
Ef starfsmaður er þegar með Abler-aðgang finnur kerfið hann og hægt er að bæta honum við viðeigandi flokk.
Ef þjálfarinn er ekki með aðgang:
Veldu viðeigandi flokk.
Skráðu netfang eða kennitölu þjálfarans.
Smelltu á Bæta við þjálfara.
Skráðu nafn þjálfarans ef þarf.
Símanúmer(GSM) er skilyrt og þarf að fylla út.
Sýndur sem slíkur í appinu, sem auðveldar leikmönnum og forráðamönnum að sjá hver ber ábyrgð á hópnum.
Getur bætt við öðrum þjálfurum, stjórnað viðburðum, æfingum og séð um öll verkefni tengd liðinu.
Svipaður aðalþjálfara en getur ekki bætt við fleiri þjálfurum í hópinn.
Í appinu birtist hann sem "Þjálfari" og er sýndur fyrir neðan aðalþjálfarann í uppbyggingu liðsins.
Sjaldnar notað hlutverk ætlað foreldrum, búningastjórum eða öðrum aðstoðarmönnum.
Geta búið til viðburði en hafa ekki full þjálfararéttindi.
Smelltu á Stofna þjálfara.
Viðkomandi fær tölvupóst með leiðbeiningum um stofnun aðgangs og getur skráð sig inn í Abler.
Farðu í Þjálfarar - valmyndina.
Smelltu á þrjá punktana við hliðina á nafni viðkomandi.
Veldu Fjarlægja úr öllum flokkum.
Þessi aðgerð fjarlægir starfsmanninn úr öllum flokkum samtímis.