Hægt er að stofna leik bæði í appinu og í tölvu, hvort sem um er að ræða æfingaleik, mótsleik eða annan skipulagðan leik. Þetta gerir þjálfurum kleift að halda utan um leiki á einfaldan hátt og tryggja að allir fái nauðsynlegar upplýsingar varðandi leikina.
Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar um hvernig ferlið virkar.
Smelltu á flokkar og veldu flokkinn þar sem þú vilt stofna leik.
Smelltu á Dagskrá og og svo " + " hægra neðra horninu.
Smelltu á Leikur og í framhaldi eru fylltar út upplýsingar til þess að stofna leik.
Farðu í Viðburðir og smelltu á örina.
Veldu Stofna leik.
Í þessum möguleika er hægt að stofna stakan leik.
Ef þið viljið stofna leik tímanlega en hafið ekki valið endanlegan hóp sem á að mæta í leikinn, mælum við með að sleppa því að velja hóp í fyrstu.
Þegar hópurinn er klár, er hægt að tengja réttan hóp við leikinn á viðburðarsíðunni. Þetta er einnig hægt að gera í appinu.
Sjá mynd að neðan fyrir nánari útskýringar.
Velja svæði: Hægt er að stilla leikinn sem heima eða úti leik.
Sjálfgefin mæting: Þegar um leik er að ræða er betra að sleppa því að haka í „Sjálfgefin mæting“, þannig að iðkendur og forráðamenn geti svarað hvort þeir komast í leikinn.
Með þessum skrefum er auðvelt að stofna og skipuleggja leiki í Abler!
Sjá hér hvernig á stofna marga leiki