Stofna aðgang í Abler
Þú getur stofnað aðgang á mismunandi vegu, en það eru ákveðnar reglur sem gilda um nýskráningu.
Hér eru fjórar leiðir til að skrá sig í Abler:
Nýskráning með rafrænum skilríkjum
Sæktu Abler appið eða farðu í gegnum vafra á markaðstorgið, veldu nýskrá og skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum.
Í skráningarferlinu tengist þú sjálfkrafa börnum sem deila með þér lögheimili eða sem þú ert skráður í forsjá fyrir samkvæmt þjóðskrá.
Ég er ekki lögheimilisforeldri eða með forsjá
Ef þú ert búinn að stofna aðgang en ert ekki skráður sem lögheimilisforeldri né í forsjárskrá, getur forráðamaður boðið þér að tengjast barninu í Abler appinu og þú þarft að samþykkja það í tölvupósti.
Börn án rafrænna skilríkja
Ef barn er ekki með rafræn skilríki getur forráðamaður sent boð í gegnum síma eða tölvupóst á barnið.
Barnið getur þá skráð sig inn og notað sinn eigin aðgang í Abler.
Ef ég er ekki með kennitölu og rafræn skilríki
Veldu Nýskráning í Abler appinu.
Veldu landið þitt í skráningarferlinu.
Þú þarft hvorki kennitölu né rafræn skilríki til að ljúka skráningu.
TENGDAR GREINAR
Hvernig fær barnið mitt sinn eigin aðgang að Abler?