Í Abler er hægt að stofna afsláttarkóða sem viðskiptavinir geta notað í kaupferlinu til að fá afslátt af völdum þjónustum.
Einnig er hægt að stofna sjálfvirkan afslátt. Smelltu hér til að sjá leiðbeiningar um sjálfvirkan afslátt.
Farðu í Fjármál í valmyndinni vinstra megin.
Veldu Afsláttur.
Smelltu á flipann Stillingar.
Veldu + Nýr afsláttur.
Þegar glugginn Búa til afslátt opnast velur þú Afsláttarkóði (fjölnota) undir afsláttartegund.
Fylltu síðan út eftirfarandi upplýsingar:
Afsláttarkóði: Nafnið á kóðanum sem viðskiptavinir slá inn í kaupferlinu, t.d. DISCOUNT123.
Takmarka heildarfjölda notkunar: Veldu ótakmarkað nema þú viljir setja hámark á hversu oft hægt er að nota kóðann.
Takmörk notkun á hvern viðskiptavin: Ákveður hversu oft sami viðskiptavinur getur notað afsláttarkóðann.
Gildistegund: Veldu hvort afslátturinn sé í prósentum (%) eða föst upphæð (kr).
Gildi: Sláðu inn upphæð eða prósentu afsláttarins.
Gildistími: Veldu dagsetningu sem afsláttarkóðinn rennur út.
Athugið: Gildistíminn takmarkar hvenær hægt er að veita afsláttinn. Afsláttur sem þegar hefur verið veittur á skráningu fellur ekki niður þegar gildistíminn rennur út.
Smelltu á Næsta til að fara í skrefið Þjónustur.
Veldu viðeigandi Deildir.
Veldu þær Þjónustur sem afsláttarkóðinn á að gilda fyrir.
Smelltu á Búa til til að vista afsláttarkóðann.
[Mynd 3 – Velja deildir og þjónustur]
Þegar afsláttarkóðinn hefur verið stofnaður og tengdur við þjónustur geta viðskiptavinir slegið hann inn í kaupferlinu.
Afslátturinn reiknast þá sjálfkrafa og birtist í greiðsluyfirlitinu áður en gengið er frá greiðslu.