Fara beint í efni

Stofna æfingaáætlun

Sem stendur er aðeins hægt að stofna æfingaáætlun í gegnum tölvu, en ekki í appinu.


Til að stofna æfingaáætlun þá er smellt á Viðburðir --> Stofna æfingaáætlun.

Sjá myndband neðst á síðunni.

Á myndinni fyrir neðan er dæmi um útfyllta æfingaáætlun sem rúllar frá 12/01/26 - 31/05/26.

Mikilvægt er að velja rétta hópa á æfingarnar til að iðkandinn/forráðamaður fái rétt æfingaplan.

Í þessu dæmi er gert ráð fyrir sjálfgefni mætingu sem þýðir að ég sem þjálfari geri ráð fyrir að allir mæti á æfinguna. Ef það er ekki hakað við "Sjálfgefin mæting" þarf iðkandi/foreldri að svara hvort hann mæti.

Á miðri æfingu eða eftir æfingu getur þjálfari svo farið í mætingakladdan og merkt við þá sem mættu ekki. Einnig getur iðkandinn/foreldrinn hakað við mæti ekki fyrir æfinguna og látið þjálfara vita.

Var þessi grein gagnleg?