Fara beint í efni

Leyfa bókanir frá samstarfsaðila (Lifepass)


Til að leyfa bókanir frá Lifepass notendum þarf að fara í Tímaplan og velja samstarfsaðilann.

Við mælum með því að gera það almennt framvegis við stofnun á tímaplani í stillingunum.

Þar sem það eru oftast virk tímaplön í gangi er einnig hægt að breyta því á þeim tímaplönum sem eiga að vera opin fyrir bókanir frá samstarfsaðila, það er gert á sama stað í Breyta tímaplani með því að smella á þrjá punkta.


Stofna/Breyta tímaplani

Það er svo einnig hægt að stýra þessu niður á hvern tíma fyrir sig og stofna tíma án samstarfsaðila við eitthvað sérstakt tilefni en við reiknum með því að þetta verði í flestum tilvikum virkjað á tímaplaninu þegar það er stofnað en með þessu hefur stöðin fulla stjórn á bókunum frá samstarfsaðila.

Stofna/Breyta stökum tíma

Var þessi grein gagnleg?