Kaupa æfingagjöld/námskeið í gegnum vefverslun
Hérna má sjá leiðbeiningar hvernig þú kaupir þjónustu í vefverslun bæði í vafra og í appinu. Þegar þú ert búin að kaupa þjónustuna þá færð þú tölvupóst þar sem hægt er að nálgast kvittun. Getur einnig nálgast kvittunina þína svona - Sjá nánar hér
Í gegnum vafra á tölvu
1. Farið er inn á abler.io/shop og þar er hægt að leita eftir félagi, vöru eða deild. Það er einnig hægt að sía eftir m.a. staðsetningu og íþróttagrein.
Velur síðan félagið og þjónustuna sem þú ætlar að skrá þig eða barnið þitt í.
Ef þú ert ekki búin að skrá þig inn þá gerir þú það með því að smella á Innskrá í Abler uppi í hægra horninu. Mikilvægt er að þú skráir þig inn sem þú sjálfur.
2. Smellir á halda áfram í kaupferlinu og þá getur þú valið fyrir hvern þú ert að kaupa. Síðan er smellt á Greiðlsuferli.
3. Velur greiðslumáta, það getur t.d. verið greiðslukort, greiðsluseðlar eða frístundastyrkur.
Ef félagið býður upp á afslátt og ef viðkomandi á rétt á afslætti þá kemur hann upp í kaupferlinu.
Ef um nýskráningu er að ræða mælum við með að þú niðurhlaðir appinu og skráir þig inn til að geta fylgst með dagskránni. Ef þú varst með aðgang fyrir kemur dagskráin sjálfkrafa í appið.
Í Abler appinu
Ef þetta er framkvæmt í appinu þá er smellt á markaðstorgið og svo er sama ferli framkvæmt.