Ef lesnir eru inn iðkendur úr mörgum flokkum þarf að sameina kennitölur allra flokka í eitt skjal og lesa það svo inn.
Passa að hafa Kennitala í reit A1 í Excel skjali.
Skrá stofn dags. ef hún er ekki tilgreind. Ef röng dagsetning er skráð skal senda tölvupóst með réttri stofndagsetningu á netfangið skila@isi.is.
Ef upp kemur villa við skráningu netfangs skal athuga hvort aukabil sé fyrir framan eða aftan netfangið.
Engin svæði eiga að vera auð. Setja 0 í svæði þar sem það á við.
Setja skal undirritaða lokaútgáfu ársreiknings í viðhengi. Hægt er að setja mörg skjöl í viðhengi, ef til dæmis undirritanir eða skýringar eru á öðru skjali.
Ef félag er með eina deild skal skrá undir nafni deildar en ekki undir aðalstjórn.
Ef félag er með fleiri en eina deild er mikilvægt að skrá inn á hverja deild fyrir sig en ekki skrá allt á aðalstjórn.
Engin svæði eiga að vera auð. Setja 0 í svæði þar sem það á við.
Athugið að til þess að klára skilin þarf að ýta á „Skila skýrslu“ neðst til hægri á síðunni þegar allir hringir eru grænir.