Greiðsluseðlar uppgjör & afstemming
Hægt er að skoða færslur og uppgjör í Abler sem tengjast greiddum greiðsluseðlum. Athugið: Greiðslan kemur beint frá greiðanda inn á reikning félagsins, en ekki frá „Greiðslumiðlun Íslands“ eins og áður. Ef greiðandi greiðir greiðsluseðil í banka, berst greiðslan samstundis til félagsins.
1. Farið í Uppgjör í Abler
Opnið Abler og farið í vinstri stikuna.
Veljið Fjármál og síðan Uppgjör & síðan Greiðsluseðlar.
2. Veljið tímabil
Veljið tímabilið sem þið viljið skoða.
Kerfið birtir greidda greiðsluseðla fyrir það tímabil ásamt heildarupphæð innborgunar.
3. Sækja nánari upplýsingar
Hægt er að flytja gögnin út í Excel til að fá nánari upplýsingar, eins og:
Greiðendur og greiðsluupplýsingar
Upphæðir og dagsetningar greiðslna
Seðilgjald
Innborgunarupphæð
Deild og þjónusta sem var greidd fyrir
Með þessum skrefum getið þið auðveldlega fylgst með greiddum greiðsluseðlum og uppgjöri í Abler.