Við innskráningu í kerfið er beðið um að skrá netfang, sem notað verður til að senda út tilkynningar úr kerfinu.
Hægt er að skrá hlutfall af stöðugildi, til dæmis 0,5 fyrir hálft stöðugildi.
Hægt að sækja ársreikning sem PDF-skjal.
Hægt að sækja lista yfir iðkendur og félagsmenn sem Excel-skrá, með því að nota Hlaða niður.
Samantektarskjal (pdf) hefur verið uppfært. Þetta er skjal sem verður til þegar búið er að skila inn gögnum og sýnir heildaryfirlit yfir skil.
Íþróttahéruð geta sótt yfirlit yfir iðkendur og félagsmenn, fyrir öll aðildarfélög innan sinna vébanda, sem Excel-skrá beint úr kerfinu (Sjá undir: Staða félags).
Sérsambönd geta sótt yfirlit yfir iðkendur sinnar íþróttar og skoðað sem Excel-skrá beint úr kerfinu niður á íþróttafélag (Sjá undir: Staða félags).
Búið er að bæta við röðun á dálka undir liðnum Staða félaga.
Athuga þarf sérstaklega hvort meistaraflokkar í öllum deildum eru skráðir í skilakerfið. Oft eru meistaraflokkar ekki tengdir í Abler-skráningarkerfið og flytjast því ekki yfir í skilakerfið.
Sé félag með skipulagt starf fyrir iðkendur með fötlun þarf að skrá slíkt í möppuna Fatlaðir. Sé hún ekki til staðar skal óska eftir að stofna hana með því að senda tölvupóst á skila@isi.is.
Sé félag með skipulagt félagsstarf sem fellur utan ÍSÍ en tilheyrir UMFÍ skal skrá þá iðkendur í flokkinn Skipulagt félagsstarf. Dæmi um slíkt eru skák, rafíþróttir, bridds, leiklist o.s.frv. Sé sú mappa ekki til staðar skal óska eftir stofna hana og senda tölvupóst á skila@isi.is.