Úr þjónustulistanum geturðu breytt þjónustu, afritað hana til að búa til nýja eða sett hana í safn þegar hún er búin. Þetta kemur sér vel í upphafi nýs tímabils, því þá geturðu afritað þjónustu síðasta tímabils í stað þess að setja allt upp aftur.
Dæmi: þú afritar „Æfingagjöld 5. flokkur 2025/26“, breytir dagsetningum og verði og birtir sem tímabilið 2026/27.
Farðu í Heim → Þjónustur.
Notaðu Allt, Virkur, Lokið eða Í safni, leitina eða Sía til að finna hana.
Smelltu á þá þrá punkta (⋮) aftast í línunni.
Listinn sýnir líka flokk, verð, tímalengd, Athygli (t.d. ógreidda reikninga), fjölda skráninga, sýnileika og stöðu hverrar þjónustu.
Breyta: breyta nafni, lýsingu, valmöguleikum, verði, dagsetningum og stillingum. Sjá Stofna þjónustu.
Afrita: búa til afrit með sömu stillingum. Breyttu því sem er öðruvísi, t.d. dagsetningum, verði og nafni tímabilsins, og vistaðu sem nýja þjónustu.
Breyta flokkun: færa þjónustuna í annan flokk í verslun.
Afrita hlekk og Skoða í verslun: deila eða opna síðu þjónustunnar í versluninni.
Flytja út sem Excel og Sækja þjónustur sem Excel: sækja skráningar og valmöguleika.
Skoða atvikaskrá: sjá hver breytti þjónustunni og hvenær.
Setja í safn: fela þjónustu sem er lokið úr listanum og versluninni. Hana má finna aftur undir Í safni.
Þegar þjónusta er sett í safn eru skráningar og reikningar ekki felldir niður. Ljúktu eða hættu við þá fyrst ef þörf er á.
Með Forskoðun efst í listanum sérðu þjónusturnar eins og meðlimir sjá þær í versluninni.
Stofna þjónustu
Skrá meðlimi í þjónustu
Ljúka skráningu