Fara beint í efni

Stofna færslu

Sem þjálfari hefurðu möguleika á að búa til færslur í Abler appinu og vafra undir færslur.


Hvað er færsla?


Færsla virkar svipað og Facebook-veggur, þar sem þú getur deilt efni með hópnum. Þetta gæti verið:

  • Myndir frá leikjum, mótum eða æfingum

  • Tilkynningar um komandi viðburði

  • Fréttir og mikilvægar uppfærslur fyrir liðið

Færslur hjálpa til við að halda leikmönnum, forráðamönnum og starfsfólki upplýstum og virkum í starfi liðsins á einfaldan og skipulagðan hátt.

Í Abler appinu

1. Smellt er á færslur og svo pennann sem er í hægra horninu.

2. Þá er hægt að skrifa í texta í boxið sem á að birta, næst er valið viðeigandi flokk eða deild. Hægt er að pinna færsluna efst á vegginn ásamt því að velja hvort forráðamenn/iðkendur geti skrifað athugasemd við færsluna.

3. Ef smellt er á plúsinn fyrir neðan "Leyfa athugasemdir" þá getur þú bætt við myndum og viðhengi.

4. Þegar búið er að skrifa texta og velja mynd má smella á "pósta".

5. Skjáskot 5 sýnir hvernig færslan lítur út

Var þessi grein gagnleg?