Fara beint í efni

Endurgreiða kortagreiðslu úr greiðsludreifingu

Fylgdu þessum skrefum til að endurgreiða kortagreiðslu úr greiðsludreifingu og stöðva framtíðargreiðslur. Að lokinni endurgreiðslu er mikilvægt að loka reikningum til að tryggja rétta færslu í bókhaldinu. Einnig ætti að fjarlægja iðkandann úr flokknum til að koma í veg fyrir að hann fái áfram æfingaplan eða aðrar uppfærslur tengdar flokknum.

Til að endurgreiða og/eða halda eftir greiðslu í greiðsludreifing:

  1. Notaðu leitarstikuna efst á skjánum til að finna iðkandann sem á að fá endurgreitt. Þú getur leitað eftir nafni, póstfangi, kennitölu, eða símanúmeri.

ATH. Leitaðu að iðkandanum sjálfum, ekki forsjáraðila.

Smelltu á upphafsstafina eða myndina við hliðina á nafni iðkandans í leitarniðurstöðunum.


  1. Veldu Reikningar hægra megin í notandaprófílnum.

  2. Smelltu á reikningsnúmer reikningsins sem á að endurgreiða.

  3. Í reikningsyfirlitinu sérð þú greiðslumáta og hvaða færslur hafa þegar verið greiddar.

  4. Til að endurgreiða færslu, smelltu á punktana þrjá við hliðina á greiddu færslunni og veldu Endurgreiða.

  5. Í glugganum sem opnast, veldu Full endurgreiðsla og smelltu á Endurgreiða.

  6. Allar framtíðargreiðslukröfur stöðvast og reikningurinn fer í stöðuna Ógreitt. Til að ganga frá reikningnum, smelltu á punktana þrjá við hliðina á Ógreitt - skoða reikning og veldu Fella niður reikning.

ATH. Mundu að fjarlægja iðkandann úr flokknum eftir að reikningnum hefur verið lokað til að koma í veg fyrir að hann fái áfram æfingaplan eða uppfærslur tengdar flokknum. Sjá Fjarlægja iðkanda úr flokki.

Var þessi grein gagnleg?