Breyttu viðburði ef þú þarft að uppfæra upplýsingar eins og tíma, staðsetningu eða lýsingu – bæði fyrir staka viðburði og æfingaáætlun.
Aflýstu viðburði ef honum þarf að fresta eða fella niður og þú vilt láta meðlimi og forráðamenn vita af ástæðunni.
Eyddu viðburði ef þú vilt fjarlægja hann án þess að senda út tilkynningu – t.d. ef hann var óvart settur á frídegi.
Athugið: Þjálfarar geta framkvæmt þetta sjálfir fyrir þá hópa sem þeir eru skráðir með.
Farðu í Viðburðir í vinstri valmyndinni.
Veldu hringinn við viðburðinn sem þú vilt breyta.
Smelltu á Breyta efst í hægra horninu.
Gerðu þær breytingar sem þarf (t.d. tíma, staðsetningu, lýsingu) og vistaðu.
Farðu í Viðburðir og veldu þann viðburð sem þú vilt aflýsa.
Smelltu á Eyða og veldu Aflýsa viðburði.
Skrifaðu inn ástæðu fyrir aflýsingu og smelltu á Staðfesta.
Þegar viðburði er aflýst fær allt viðkomandi fólk (leikmenn, forráðamenn, starfsfólk) tilkynningu í Abler-appinu með upplýsingum um aflýsinguna og ástæðuna sem þú slóst inn.
Svona birtist aflýsingin í appinu fyrir notendur.
Ef þú vilt bara fjarlægja viðburð án þess að senda út tilkynningu:
Farðu í Viðburðir og veldu viðburðinn.
Smelltu á Eyða og veldu Eyða viðburði.
Viðburðurinn verður þá fjarlægður úr dagskránni án þess að þátttakendur fái tilkynningu.