Þú getur búið til gjafakort sem eru seld á markaðstorginu. Þú velur hvort gjafakortið gildi fyrir einstaka námskeið eða allar þjónustuleiðir sem eru í boði.
Þegar kaupandi kaupir gjafakort á markaðstorginu:
Fær hann tölvupóst með staðfestingu og prentvænni útgáfu af kortinu.
Handhafi gjafakortsins getur notað kóðann á kortinu til að greiða fyrir þjónustu á markaðstorgi félagsins/fyrirtækisins.
Ath: Þú þarft að hafa stjórnenda- og greiðsluréttindi hjá félaginu til að geta búið til gjafakort.
Veldu Fjármál í vinstri valmyndinni í Stjórnenda HQ.
Opnaðu flipann Afslættir og veldu Uppsetning.
Smelltu á Stofna og veldu Stofna afslátt.
Undir Almennt, fylltu inn grunnupplýsingarnar fyrir gjafakortið:
Tegund: Veldu Gjafakort.
Nafn: Gefðu gjafakortinu lýsandi nafn.
Upphæð gjafakorts: Sláðu inn verð gjafkortsins.
Líftími afsláttar: Stilltu gildistíma gjafakortsins (ekki lengri en gildistími aflsláttarprófílsins).
Valid for: Skilgreindu hversu lengi gjafakort tengd við prófílinn mega vera gild.
Í Þjónustur getur þú valið hvaða deildir eða þjónustur kortið gildir fyrir. Athugið ef heimila á notkun á námskeiðum í fleiri deildum þá eru þær einfaldlega valdar undir Deildir og þjónustur deildanna birtast í Accepted by.
Veldu Þjónustuyfirlit undir viðeigandi deild í vinstri valmyndinni.
Smelltu á Stofna í efra horninu hægra megin og veldu Add Giftcard.
Fylltu inn upplýsingarnar fyrir gjafakortið:
Gefðu kortinu nafn og skrifaðu lýsingu á þjónustunni eða vörunni. Í Giftcard velur þú gjafakortið sem þú bjóst til.
Staðsetning: Bættu við staðsetningu félagsins.
Forskoða í vefverslun: Þú getur skoðað hvernig þjónustan lítur út á markakðstorginu áður en þú stofnar hana.
Þegar þú ert tilbúin(n), smelltu á Stofna.
Eftir að kortið hefur verið búið til er það selt á markaðstorgi félagsins/fyrirtæksins (abler.io/shop/nafnfélags).